Home / Series / RAX augnablik / Aired Order /

All Seasons

Season 1

  • S01E01 Vigdís og Reagan

    • January 1, 2020
    • Stöð 2

    Ragnar Axelsson ljósmyndari segir söguna af því þegar Vigdís Finnbogadóttir og Ronald Reagan Bandaríkjaforseti hittust. Vel fór á með þeim og náði Ragnar ógleymanlegum myndum.

  • S01E02 Undir gosmekkinum

    • January 8, 2020
    • Stöð 2

    Ragnar Axelsson ljósmyndari segir sögurnar á bak við ógleymanlegar myndir sínar frá eldgosinu í Grímsvötnum 2011.

  • S01E03 Í krumlu hafíssins

    • January 15, 2020
    • Stöð 2

    Ragnar Axelsson ljósmyndari segir æsispennandi sögur á bak við ógleymanlegar myndir sínar af veiðimönnum á ísbjarnarveiðum á Grænlandi.

  • S01E04 Litli drengurinn í Elduvík

    • January 22, 2020
    • Stöð 2

    RAX heimsótti þorpið Elduvík í Færeyjum árið 1997 og náði þar einstökum myndum, þar á meðal af nýfæddum litlum dreng. Áður en bókin Andlit norðursins var endurútgefin fór ljósmyndarinn aftur í sama þorpið til þess að finna strákinn á myndinni.

  • S01E05 Guðjón við Dyrhólaey

    • January 29, 2020
    • Stöð 2

    Ragnar Axelsson ljósmyndari segir söguna á bak við myndina sem prýðir forsíðu bókarinnar Andlit norðursins. Myndin af Guðjóni Þorsteinssyni í fjörunni við Dyrhólaey er ein af þekktustu ljósmyndum RAX. Samband þeirra var einstakt og í þættinum fáum við að kynnast betur gamla manninum sem RAX myndaði við hafið.

  • S01E06 Víkartindur strandar

    • February 5, 2020
    • Stöð 2

    5. mars árið 1997 lenti flutningaskipið Víkartindur í sjávarháska í brjáluðu veðri eftir að vélarbilun kom upp í skipinu snemma morguns. Ragnar Axelsson rifjar upp þennan sjávarháska.

  • S01E07 Lífið í Fugley

    • February 12, 2020
    • Stöð 2

    Árið 1988 dvaldi RAX í mánuð í Færeyjum og myndaði mannlífið. Í Fugley eru tvær byggðir, Kirkja og Hattarvík, en þar kynntist ljósmyndarinn einstökum karakterum.

  • S01E08 Leyndardómar Roscoe fjalla

    • February 19, 2020
    • Stöð 2

    Ragnar Axelsson ljósmyndari segir sögur veiðimanna um Roscoe fjöllin sem hann myndaði á Grænlandi.

  • S01E09 Komið af fjöllum

    • February 26, 2020
    • Stöð 2

    Í þættinum segir Ragnar Axelsson frá fyrstu kynnum sínum af Kristni fjallkóngi og smalamennsku á fjöllum. RAX var alls ekki vinsæll eftir hegðun sína í þessari fyrstu ferð en eignaðist þó vin fyrir lífstíð.

  • S01E10 Snjóflóðin á Súðavík og Flateyri

    • March 4, 2020
    • Stöð 2

    Ragnar var sendur á staðinn eftir snjóflóðin bæði í Súðavík og á Flateyri árið 1995 til þess að skrásetja atburðina. Í þættinum fer hann yfir það hvernig það var að mæta á vettvang og mynda eftir þessar náttúruhamfarir fyrir 25 árum. Sýndar eru myndir sem RAX tók eftir flóðin og hann segir frá sinni upplifun.

  • S01E11 Ole og Qerndu

    • March 11, 2020
    • Stöð 2

    Ragnar vildi safna sögum veiðimannanna á Grænlandi svo þær myndu ekki gleymast. Vinur hans og fyrrverandi veiðimaðurinn Ole, sagði honum ljúfsára sögu af klárasta hundi sem hann hafði átt, honum Qerndu.

  • S01E12 Bræður horfa á hafið

    • March 18, 2020
    • Stöð 2

    Í Elduvík í Færeyjum hitti Ragnar tvo menn á förnum vegi sem horfðu á hafið. Hann lýsir samskiptum sínum við þá og fólkið í Elduvík, sem hann lýsir sem þorpi sem hafi gleymst á milli fjallanna.

  • S01E13 Yfir 100 metra djúpum jökulsprungum

    • March 25, 2020
    • Stöð 2

    Í nýjasta þættinum af RAX Augnablik segir Ragnar Axelsson söguna á bak við ljósmyndirnar hans af Gjálpargosinu í Vatnajökli árið 1996.

  • S01E14 Kali og ísbjörninn

    • April 1, 2020
    • Stöð 2

    Þegar Ragnar safnaði sögum grænlensku veiðimannanna heyrði hann söguna af Kali sem ólst upp um tíma með ísbjarnarhún sem var sleppt aftur í náttúruna þegar hann stækkaði. Kali var viss um að hann hafi hitt ísbjörninn seinna, sem varð honum lífsbjörg.

  • S01E15 Sundreið í Rangá

    • April 8, 2020
    • Stöð 2

    Ein af eftirminnilegum myndum Ragnars Axelssonar ljósmyndara er af Kristni Guðnasyni, fjallkóngi og bónda á Landmannaafrétti, þar sem hann sundríður yfir Rangá og dregur kind með sér.

  • S01E16 Tónelska folaldið

    • April 15, 2020
    • Stöð 2

    Ragnar Axelsson hefur í gegnum árin eytt miklum tíma í Færeyjum og myndað þar mannlífið. Í þættinum Tónelska folaldið segir hann söguna á bak við einstakar myndir af sem hann tók af Jónasi Madsen sem hann tók í heimsókn sinni árið 1989.

  • S01E17 Sprengigos í Gjálp

    • April 22, 2020
    • Stöð 2

    Ragnar Axelsson ljósmyndari segir söguna á bak við myndirnar sem hann tók eftir Gjálpargosið árið 1996. Með RAX á vettvangi voru meðal annars Ómar Ragnarsson og Ari Trausti Guðmundsson.

  • S01E18 Axel á Gjögri

    • April 29, 2020
    • Stöð 2

    Ragnar Axelsson smellti mynd af Axel á Gjögri, þar sem hann sat í bátnum sínum . RAX fann það strax að það væri eitthvað einstakt við myndina sem hann tók af Axel og Týra í fjörunni og átti hún eftir að hafa mikil áhrif á hans feril sem ljósmyndari.

  • S01E19 Af draugum og halastjörnum

    • May 6, 2020
    • Stöð 2

    Árið 1997 ferðaðist Ragnar Axelsson um Austurströnd Grænlands og myndaði þar náttúruna, dýrin og mannlífið. Á Grænlandi myndaði hann meðal annars Hale-Bopp halastjörnuna frægu. RAX var svo að mynda í litlu þorpi ásamt vini sínum þegar þeir komust í hann krappan um miðja nótt.

  • S01E20 Leiðtogafundurinn í Höfða

    • May 13, 2020
    • Stöð 2

    Á leiðtogafundinum í Höfða árið 1986 var Ragnar Axelsson ljósmyndari í hópi fjölmiðlafólksins á staðnum. Hann tók þar eftirminnilegar myndir af Mikhail Gorbachev, leiðtoga Sovétríkjanna og Ronald Reagan, forseta Bandarikjanna.

  • S01E21 Á eldingaveiðum

    • May 20, 2020
    • Stöð 2

    Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson kemur sér oft í hættulegar aðstæður þegar hann reynir að ná ákveðnum myndum eða sjónarhornum. Eldgosið í Grímsvötnum árið 2011 er gott dæmi um það. RAX segir söguna af eldingaveiðum sínum í þessum þætti af RAX Augnablik.

  • S01E22 Jökulstormur

    • May 27, 2020
    • Stöð 2

    Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson hefur mjög gaman að því að taka myndir í vondu veðri. Hann hefur meðal annars náð mögnuðum myndum í Piteraq jökulstormum sem skella oft á yfir vetrartímann á austurströnd Grænlands.

  • S01E23 Íslensku jöklarnir

    • June 3, 2020
    • Stöð 2

    Ragnar Axelsson ljósmyndari ólst upp við jöklana. Síðustu áratugi hefur hann flogið ótal ferðir yfir jökla landsins og náð þar stórkostlegum myndum. Hann segir frá þeim í þessum nýja þætti af RAX Augnablik.

  • S01E24 Skúmurinn

    • June 10, 2020
    • Stöð 2

    Í nýjasta þættinum af RAX Augnablik segir Ragnar Axelsson frá því hvernig ljósmyndaáhuginn hans byrjaði. RAX er margverðlaunaður ljósmyndari og myndir hans hafa birst í mörgum af virtustu tímaritum heims en þetta byrjaði eiginlega allt með skúminum.

  • S01E25 Kóngurinn í Thule

    • June 17, 2020
    • Stöð 2

    Ragnar Axelsson heimsótti Thule, sem var nyrsta byggð í heimi, árið 1987. Þar fylgdist hann með veiðimönnum úti á ísnum við Grænland í fyrsta skipti, meðal annars manninum sem kallaður var kóngurinn í Thule.

  • S01E26 Kölski í Holuhrauni

    • June 24, 2022
    • Stöð 2

    Ragnar fór fimmi sinnum að mynda gosið í Holuhrauni árið 2014. Aðstæður voru hættulegar og segir Ragnar að þetta hafi verið eins og að horfa í hið neðra.

  • S01E27 Ólafur í Sandey gengur aftur

    • July 1, 2022
    • Stöð 2

    Ragnar ferðaðist til þorpsins Húsavíkur í Sandey í Færeyjum árið 1988. Þar hittir hann mann á gangi sem býður honum með heim. 27 árum seinna snýr Ragnar aftur til þorpsins og reynir að finna manninn.

  • S01E28 Hesturinn hlæjandi

    • July 8, 2022
    • Stöð 2

    Ragnar fór ásamt hópi fólks á fjall að smala. Eftir að hafa náð skondinni mynd af kind vildi hann ná mynd af hlæjandi hesti. Í einni áningunni gaf hann hesti smá kók og úr varð myndin af hlæjandi hestinum.

  • S01E29 Maríurnar í Lombardinha

    • July 15, 2022
    • Stöð 2

    Árið 2012 fór Ragnar Axelsson ljósmyndari til Portúgal að ganga um fjöllin. Hann segir mest megnis hafa rignt en lýsir því hversu mikil upplifun það hafi verið að heimsækja þessi litlu fjallaþorp. Hann minnist sérstaklega þorpsins Lombardinha þar sem hópur af svartklæddum konum, sem allar hétu María, varð á vegi þeirra.

  • S01E30 Selsbelgurinn

    • July 22, 2022
    • Stöð 2

    Ragnar segir frá veiðiaðferðum Grænlendinga og ferðalagi til Thule. Þar kynntist hann meðal annars Ole, sem saumaði skó á sárfætta veiðihundana.

  • S01E31 Tomas og nunnurnar

    • July 29, 2022
    • Stöð 2

    Ragnar segir að Færeyjar séu einn af sínum uppáhalds stöðum og að þar sé besta fólk í heiminum. Í vinnuferð í Færeyjum árið 1988 kynntist hann manni að nafni Tomas.

  • S01E32 Krakatá, eyjan sem sprakk

    • August 5, 2022
    • Stöð 2

    Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur og einn af okkar virtari vísindamönnum í heiminum, fór ásamt tveimur erlendum vísindamönnum árið 1990 til að rannsaka hvað hafi átt sér stað. Ragnar Axelsson ljósmyndari og Árni Johnsen fengu að slást með í för.

  • S01E33 Á borgarísjaka

    • August 12, 2022
    • Stöð 2

    Ragnar segir söguna á bak við stórkostlegar myndir sem hann tók af tveimur mönnum á ísjaka við Grænland. Hann viðurkennir að uppátækið sé ekki til eftirbreytni en myndirnar eru í persónulegu uppáhaldi hjá honum.

  • S01E34 Litli Bent og lífið í Kap Hope

    • August 19, 2022
    • Stöð 2

    Í nýjasta þættinum af RAX Augnablik rifjar Ragnar Axelsson ljósmyndari upp ferð út á hafísinn árið 1995. Með honum var grænlenski veiðimaðurinn Hjelmer og notuðu þeir hundasleða til að komast leiðar sinnar. Þeir komu við í litlu þorpi og enduðu á að stoppa þar lengur en þeir ætluðu sér.

  • S01E35 Þegar slökknaði á sólinni

    • August 26, 2022
    • Stöð 2

    Sólmyrkvinn 3. október 1986 var einstakur að því leyti að hann var á mörkum almyrkva og hringmyrkva. Ragnar Axelsson fór í flug til að reyna að ná myndum af sólmyrkvanum á milli Íslands og Grænlands.

Season 2

  • S02E01 Kýrin þrjóska í Mykinesi

    • October 1, 2022
    • Stöð 2

    Árið 1996 eyddi Ragnar nokkrum dögum í eynni Mykinesi í Færeyjum þar sem hann fylgdist með daglegri baráttu Bjarna Hansen við að koma kú nokkurri í hús.

  • S02E02 Breytingar á hafísnum við Grænland

    • October 8, 2022
    • Stöð 2

    Árið 2015 varð Ragnar að flýja undan stormi ásamt Tobiasi veiðimanni til þess að verða ekki veðurtepptir í í þorpinu Tiniteqilaaq við Sermilik fjörð. Í þorpinu var einnig ljósmyndarinn Kristján Friðriksson sem varð eftir. Ragnar kom til Tiniteqilaaq með tuttugu ára millibili og sá með eigin augum breytingarnar sem eiga sér þar stað.

  • S02E03 Skipsströnd

    • October 15, 2022
    • Stöð 2

    Snemma árs 1981 strönduðu þrjú skip við strendur Íslands, Katrín VE, Sigurbára, og Heimaey. Ragnar Axelsson flaug og myndaði ströndin og björgun áhafnanna í svo slæmum veðrum að stundum óttuðust vinir og vandamenn um afdrif hans og förunauta hans.

  • S02E04 Færeyskar kosningar

    • October 22, 2022
    • Stöð 2

    Í einni af ferðum sínum til Færeyja varð Ragnar vitni að kosningabaráttu og heillaðist af einfaldleikanum og einlægninni í aðferðum frændfólks okkar við að kynna sig fyrir kjósendum.

  • S02E05 Skilaboð blávatnanna

    • October 29, 2022
    • Stöð 2

    Í einni af ferðum sínum til Grænlands tók Ragnar eftir því að jökullinn var að bráðna meira en hann hafði áður séð. Leysingavatnið myndaði aragrúa fagurblárra vatna ofan á jöklinum sem Ragnar og Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur ákváðu að skoða betur. Skúli Mogensen var staddur á Grænlandi á sama tíma og slóst í för með þeim, en förin var ekki hættulaus.

  • S02E06 Vægðarlaus veröld sleðahundanna

    • November 5, 2022
    • Stöð 2

    Veiðimenn Grænlands eiga sleðahundunum að mörgu leyti líf sitt að launa. En veruleiki sleðahundanna er enginn barnaleikur eins og Ragnar kynntist af eigin raun.

  • S02E07 Á fýlaveiðum

    • November 12, 2022
    • Stöð 2

    Færeyingar eru að mörgu leyti í sterkum tengslum við náttúruna og Ragnar elti eitt sinn mann að nafni Heine upp á fuglabjarg til þess að fylgjast með honum veiða fýl með háfi. Lífið í Færeyjum er í öðrum takti en við eigum að venjast sem Ragnar segir að sé stór hluti af sjarma eyjanna.

  • S02E08 Undraveröld Íshellanna

    • November 19, 2022
    • Stöð 2

    Ragnar hefur farið í fjölmarga íshella ásamt Einari Sigurðssyni, einum af helstu frumkvöðlum þess að finna og kanna þessa hella. Það leynast miklir töfrar í aldagömlum jökulísnum og Ragnar sér alltaf eitthvað nýtt þegar hann beinir myndavélinni inn í ísinn, í þeirri undraveröld sem íshellar undir jökli eru.

  • S02E09 Í norðangarra í Grjótnesi

    • November 26, 2022
    • Stöð 2

    Árið 1996 heimsótti Ragnar hjónin Björn og Hildi í Grjótnesi á Melrakkasléttu, ásamt Guðna Einarssyni blaðamanni, til þess að kynnast þeim og lífinu í Grjótnesi. Hjónin voru tvö eftir á bæ sem taldi hátt í 40 íbúa þegar best lét. Hundurinn Glói tók á móti þeim félögum í norðangarranum sem blés hressilega þann daginn, og Ragnar stóðst ekki mátið að smella af honum mynd.

  • S02E10 Má ekki stundum vera gaman?

    • December 3, 2022
    • Stöð 2

    Eftir samtal við mann á öldrunarheimili sem sá eftir því að hafa verið leiðinlegur við fólk á lífsleiðinni, fór Ragnar að velta því fyrir sér hvort alvaran þyrfti alltaf að ráða för í ljósmynduninni eða hvort það mætti hafa gaman og taka myndir sem væru spaugilegar og vektu gleði.

Season 3

  • S03E01 Finnska gufubaðið

    • March 16, 2021
    • Stöð 2

    Á ferð sinni um Finnland, þegar Ragnar var að skrásetja lífið á norðurslóðum, langaði hann að ná myndum af hinni miklu gufubaðshefð sem Finnar halda í heiðri. Hann fékk boð um að hann mætti mynda hóp manna sem stunduðu gufubað og sjósund naktir, með því skilyrði að hann baðaði sig líka.

  • S03E02 Ljósmyndir sem selja Ísland

    • March 23, 2021
    • Stöð 2

    Í þessum þætti sýnir Ragnar myndir frá ferðum sínum með bandaríska ljósmyndaranum Robert L. Breeden, sem er hugfanginn af Íslandi, um staði á hálendi Íslands sem fáir heimsækja og minna helst á aðra plánetu. Hann fjallar einnig um áhrif ljósmynda af Íslandi sem birtast á erlendum samfélags- og fréttamiðlum og minnist flugmannsins Haraldar Diego, sem var gríðarlega vinsæll meðal erlendra ljósmyndara sem vildu mynda Ísland úr lofti.

  • S03E03 Haförninn í Lofoten

    • March 30, 2021
    • Stöð 2

    Ragnari var boðið til Lofoten í Noregi til þess að kafa með og mynda háhyrninga. Þrátt fyrir að hann hefði enga köfunarreynslu ákvað hann að slá til. Hann var feginn þegar að aðstæður reyndust of erfiðar til þess að kafa með háhyrningunum og ákvað í staðinn að skrásetja lífið í Lofoten, þar sem fólk stundar sjósund og brimbrettaiðkun af kappi. Þar má einnig finna haferni sem Ragnar segir að hafi tignarlega og hættulega áru. Hann ákvað engu að síður að reyna að ná mynd af einum haferninum.

  • S03E04 Í gær var ég ung

    • April 6, 2021
    • Stöð 2

    Árið 1993 heimsótti Ragnar Síberíu í fyrsta skipti. Hann heimsótti lítið þorp í ríkinu Yakutiu í austanverðri Síberíu og heillaðist af lífinu þar en hann lýsir heimsókninni eins og að stíga inn í leikrit sem gerist fyrir 100 árum. Honum fannst svo áhugavert að mynda lífið í þorpinu að hann upplifði það eins og að detta ofan í holu sem er full af demöntum.

  • S03E05 Lífið í 53 stiga frosti

    • April 13, 2021
    • Stöð 2

    Fyrir nokkrum árum var Ragnar aftur á ferð í Yakutiu í Síberíu, en ríkið er þekkt fyrir miklar öfgar í hita og kulda. Höfuðborg ríkisins, Yakutsk, er kaldasta borg heims, og Ragnar vildi skrásetja lífið í kuldanum í borginni og á túndrunni í nágrenni borgarinnar.

  • S03E06 Hreindýrahirðingjarnir á túndrunni

    • April 20, 2021
    • Stöð 2

    Ragnar langaði að skrásetja með myndum líf hreindýrahirðingjanna á Síberísku túndrunni, en til þess þurfti hann að ferðast til borgar sem aðeins var hægt að ferðast til ef manni væri boðið þangað. Ragnar átti vin þar, rússneskan gas-vísindamann, sem hjálpaði honum að komast út á túndruna og kynnast hinu framandi lífi hreindýrahirðingjanna.

  • S03E07 Á Suðurskautinu

    • April 27, 2021
    • Stöð 2

    Árið 2010 heimsótti fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands, Michel Rocard, Ísland. Hann heillaðist af myndum Ragnars og bauð honum með sér í ferð á Suðurskautið. Dýralífið þar fangaði hug Ragnars en hann komst í návígi við mörgæsir og seli og náði af þeim einstökum myndum, meðal annars þar sem forsætisráðherrann fyrrverandi rökræddi við mörgæsirnar.

  • S03E08 Sjávarháski Shackleton

    • May 4, 2021
    • Stöð 2

    Í ferð sinni til Suðurskautsins sigldi Ragnar sömu leið og heimskautafarinn Ernest Shackleton sigldi á björgunarbát til þess að sækja björgun fyrir áhöfn sína sem hafðist við á Fílaeyju eftir að skip þeirra, Endurance, botnaði og sökk í sjóinn eftir að hafa setið fast í hafís í 9 mánuði. Ragnar lenti í fárviðri á leiðinni líkt og Shackleton gerði rúmum hundrað árum fyrr, og Ragnar þurfti að binda sig fastan á þilfarinu til þess að ná myndum af samskonar háska og Shackleton og föruneyti lögðu sig í.

  • S03E09 Pósturinn í Djúpinu

    • May 11, 2021
    • Stöð 2

    Fyrir nokkrum árum fékk Ragnar að fylgja Þórði póstmanni í Ísafjarðardjúpi þar sem hann fór milli bæja og hitti skemmtilegt fólk sem hann færði póstinn.

  • S03E10 Á selveiðum

    • May 18, 2021
    • Stöð 2

    Þegar Ragnar var 10 ára myndaði hann bændur á selveiðum. Bændurnir tóku af honum loforð um að myndirnar yrðu ekki birtar fyrr en eftir þeirra dag og birtust þær nýlega í fyrsta sinn á prenti í tengslum við stærstu yfirlitssýningu Ragnars til þessa.

  • S03E11 Gömlu hjónin í Tasuiaq

    • May 25, 2021
    • Stöð 2

    Árið 1992 myndaði Ragnar hjón á tíræðisaldri í grænlenska bænum Tasuiaq þar sem þau fylgdust með lífinu í þorpinu á fyrsta skóladegi vetrarins.

  • S03E12 Gamla konan og húsið sem brann

    • June 1, 2021
    • Stöð 2

    Árið 1997 kynntist Ragnar gamalli konu á Grænlandi sem bauð honum selssúpu. Örfáum dögum síðar brann húsið hennar og Ragnar myndaði eftirleikinn.

  • S03E13 Hundarnir í sjónum

    • June 8, 2021
    • Stöð 2

    Í einni af ferðum sínum til Grænalands náði Ragnar mynd af sleðahundum sem féllu í sjóinn í gegnum sprungu á hafísnum. Hann var svo spenntur að ná myndinni að hann féll sjálfur ofan í sprunguna.

  • S03E14 Tunglið Ísland

    • June 15, 2021
    • Stöð 2

    Þegar Ragnar flýgur yfir Íslandi og sólin er lágt á lofti og skuggarnir teygja úr sér, þá líður honum eins og geimfara og finnst hann vera að horfa á tunglið.

  • S03E15 Eiðni í Afríku

    • June 22, 2021
    • Stöð 2

    Um síðustu aldamót geisaði eyðni faraldur í Afríku og var ástandið einna verst í syðri hluta álfunnar. Rauði kross Íslands ákvað að hefja söfnun til þess að fræða fólk á þessu svæði um sjúkdóminn. Ragnar fór til Suður-Afríku og Mozambique til þess að mynda ástandið og sýna Íslendingum.

  • S03E16 Sögur úr Covid

    • June 29, 2021
    • Stöð 2

    Þó svo að Ragnar héldi að covid myndi aðeins vara í þrjá mánuði, skynjaði hann í upphafi faraldursins að það væri mikilvægt að skrásetja þetta ástand með myndum. Hann ferðaðist um mannlausa þjóðvegi, hitti fólk sem missti heilsu og ástvini, en myndaði líka sögur fólks sem lifði af og náði sér.

Season 4

  • S04E01 Stormur undir Eyjafjöllum

    • September 1, 2021
    • Stöð 2

    Árið 1993 stefndi djúp lægð að landi. Veðrið yrði verst undir Eyjafjöllum og Ragnar hélt rakleiðis þangað til þess að mynda veðurhaminn þegar að lægðin skylli á landinu.

  • S04E02 Leitin að gullskipinu

    • September 8, 2021
    • Stöð 2

    Skip sem innihélt mikið magn verðmætra málma og gimsteina fórst við Skeiðarársand á 17. öld. Í gegnum tíðina hefur Ragnar fylgst með tilraunum til þess að finna þetta skip í sandinum.

  • S04E03 Afmæli í Færeyjum

    • September 15, 2021
    • Stöð 2

    Þegar Björn bóndi, fjölskyldufaðir einu fjölskyldunnar á eynni Koltur, hugðist halda upp á afmælið sitt vissi hann ekki hvort einhver myndu koma því eina leiðin til þess að taka þátt í afmælisveislunni væri að sigla þangað. Bróðir Bjarnar skipulagði siglingu til eyjarinnar á tólf-ærðum báti ásamt vöskum hópi manna og Ragnar stóðst ekki mátið að fá far með þeim.

  • S04E04 Jónmundur með níu líf

    • September 22, 2021
    • Stöð 2

    Ragnari var eitt sinn bent á mann að nafni Jónmundur sem var sagður hafa 9 líf því hann hafði lent í meiri hrakföllum en flest okkar. Ragnar fékk að mynda Jónmund og heyra hrakfalla sögur hans.

  • S04E05 Ísbjörn við Haun á Skaga

    • September 29, 2021
    • Stöð 2

    Árið 2008 lagði Ragnar upp í erfiða flugferð norður í land til þess að mynda ísbjörn sem hafði gengið á land við Hraun á Skaga. Viðbúnaður var á svæðinu og til stóð að fanga ísbjörninn.

  • S04E06 Kötlujökull kallar

    • October 6, 2021
    • Stöð 2

    Kötlujökull heillar Ragnar jafnt að utan sem innan. Að utan er hann skreyttur pýramídum en að innan er hann skreyttur andlitum. Ragnar er sannfærður um að Katla muni gjósa fyrr en síðar og þá er óljóst hver afdrif undraheims Kötlujökuls verða.

  • S04E07 Í sjálfheldu á Skarðshyrnu

    • October 13, 2021
    • Stöð 2

    Á gamlárskvöld árið 1994 fældist hópur hesta við flugeldasprengingar og fannst ekki fyrr en þremur dögum seinna, í sjálfheldu uppi á fjallinu Skarðshyrnu. Ragnar slóst í för með hópi manna sem hugðist halda í leiðangur upp á fjallið til þess að bjarga hestunum.

  • S04E08 Notalega Nólsey

    • October 20, 2021
    • Stöð 2

    Árið 1988 sigldi Ragnar í Nólsey í Færeyjum. Eyjan hefur rólegan gamaldags sjarma og þar tóku á móti honum tveir menn sem minntu hann á Gög og Gokke, og hann velti fyrir sér hvort þeir væru fluttir í kyrrðina í Nólsey til þess að flýja frægðina.

  • S04E09 Þórður og Olgeir fjallamenn

    • October 27, 2021
    • Stöð 2

    Ragnar fylgdi fjallmönnunum Þórði og Olgeiri um árabil að smala fé af fjöllum í Landmanna-afrétt en hann óttast að það sé hefð sem sé að líða undir lok.

Season 5

  • S05E01 Suðurlandið sekkur

    • Stöð 2

    Á jóladagsnótt árið 1986 sökk flutningaskipið Suðurland við dularfullar aðstæður á leið sinni til Murmansk. Danska varðskipið Vædderen var statt í Færeyjum og fór af stað ásamt þyrlu til þess að bjarga skipverjum Suðurlandsins sem biðu standandi í lekum og tættum gúmmíbát í tæplega ellefu klukkustundir eftir björgun. RAX var beðinn að fljúga til Færeyja ásamt blaðamönnum Morgunblaðsins og taka á móti skipverjunum þegar þeir kæmu til hafnar með varðskipinu.

  • S05E02 Einbúar

    • Stöð 2

    RAX hefur hitt fólk nokkra einbúa sem margir hverjir hafa fullt að segja en heyrist sjaldan í, eins og RAX kemst að orði. Meðal þeirra er Fríða í Dagverðargerði sem bjó ein ásamt kettinum sínum og lá ekki á glettnum skoðunum sínum. RAX hitti líka ekkjumanninn Jón í Gautsdal sem var ekki draughræddur þó hann byggi afskekkt og hefði ekki sjónvarp sér til félagsskapar, en hræðsluleysið kom sér vel þegar hann upplifið tveggja ára tímabil þar sem hann var skyggn.

  • S05E03 Sjálfstæðisbarátta Eystrasaltsríkjanna

    • Stöð 2

    Árið 1990 lýstu Eystrasaltsríkin yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum og í janúar 1991 hélt Jón Baldvin Hannibalsson, þáverandi utanríkisráðherra, utan til þess að viðurkenna sjálfstæði þeirra fyrir hönd Íslands, fyrst ríkja heims. RAX fylgdi honum út ásamt öðru fjölmiðlafólki.

  • S05E04 Lífið í Sierra Leone

    • Stöð 2

    Þegar RAX heyrði af því að í Sierra Leone væru strendurnar að eyðast og sjórinn farinn að taka neðri hæðir af húsum, langaði hann að kynna sér lífið þar, ekki síst vegna þess að íslenski velgjörðasjóðurinn Aurora foundation er með starfsemi í landinu og hjálpar fólki að stofna fyrirtæki og búa til störf svo að fólkið hafi lífsviðurværi á heimaslóðum.

  • S05E05 Ikatek flugvöllur

    • Stöð 2

    Að ramba á stað sem eitt sinn iðaði af lífi en er nú í eyði er sérstök upplifun. Ikatek flugvöllur á Grænlandi er þannig staður. Hann var byggður af Bandaríkjaher í seinna stríði og notaður sem varaflugvöllur þar sem flugvélar á þessum slóðum gátu fengið olíu. Bílar, olíutunnur og leifar af flugskýlum og skálum standa á svæðinu innan um tignarleg fjöllin í kring og hafa ekki verið hreyfð eða notuð frá því að stríðinu lauk.

  • S05E06 Flugslys á Eiríksjökli

    • Stöð 2

    Tveir Bretar ætluðu að fljúga yfir Eiríksjökul á leið sinni til Grímseyjar árið 1984 en flugu á jökulinn og brotlentu á honum í kjölfarið. Hannes Hafstein, sem stýrði Slysavarnarfélaginu á þessum tíma, bað RAX að reyna að ná myndum af slysstað.

  • S05E07 Mannýga nautið

    • Stöð 2

    Á einni af ferðum sínum um Færeyjar kom RAX auga á skjöldótt naut sem hann langaði að mynda. Það stóð við mosagróinn hlaðinn vegg og RAX sá fyrir sér mynd þar sem það liti út fyrir að vera hluti af veggnum. Nautið átti sér hins vegar enga drauma um fyrirsætustörf og brást hið versta við og reyndi að stanga RAX sem flúði upp á vegginn þar sem hann mátti dúsa í hálftíma.

  • S05E08 Flóð

    • Stöð 2

    Í desember árið 2006 flæddu Hvítá, og Litla og Stóra Laxá yfir bakka sína með þeim afleiðingum að stórt landsvæði á Suðurlandi var þakið vatni. Stór hópur hrossa lenti í sjálfheldu úti í vatninu í hávaðaroki og miklum öldugangi. Björgunarsveit var ræst út til að koma hrossunum til bjargar og RAX var á staðnum og náði myndum af björgunaraðgerðunum þar sem björgunarsveitin þurfti að reka hrossin á sund til þess að koma þeim í land.

  • S05E09 Síðustu ábúendur í Lokinhamradal

    • Stöð 2

    Lokinhamradalur er fallegur en afskekktur dalur á Vestfjörðum. Í dalnum bjuggu tveir einbúar, Sigurjón á bænum Lokinhömrum, og Sigríður á Hrafnabjörgum. Aðeins voru 300 - 400 metrar og einn lækur á milli bæjanna.

  • S05E10 Hafrún strandar

    • Stöð 2

    Í mars árið 1983 strandaði skipið Hafrún við Stigahlíð á Vestfjörðum. RAX fékk að fara með Landhelgisgæslunni að bjarga skipverjunum en hann fékk að sitja í franskri Puma þyrlu sem verið var að kynna fyrir gæslumönnum.

Season 6

  • S06E01 Anna Marta í Mjóafirði

    • Stöð 2

    Árið 1995 voru RAX og Jón Kalman á ferð um Austurland í leit að fréttum þegar þeir hittu Önnu Mörtu sem bjó ein á bæ í Mjóafirði. "Það var eins og sólin væri að koma upp." segir RAX um Önnu sem var einstaklega skemmtileg og sagði þeim áhugaverðar sögur eftir að hún hafði fengið þá til að aðstoða sig við bústörfin.

  • S06E02 Selurinn Kobbi

    • Stöð 2

    Árið 1996 bjargaði Gísli Daníel Reynisson kóp úr fjörunni við Vík í Mýrdal en kópurinn hafði orðið viðskila við móður sína. Hann fékk nafnið Kobbi og varð fljótt hluti af fjölskyldunni og neitaði að fara þegar þau reyndu að sleppa honum aftur út í sjó.

  • S06E03 Guðmundur Eyjólfur á Rúnu

    • Stöð 2

    Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson vildi ná myndum af sjómanni á opnum viðarbáti áður en þeir hyrfu fyrir fullt og allt og heyrði af eldri manni á Ísafirði, Guðmundi Eyjólfi, sem sigldi flesta daga á slíkum báti. Báturinn hét Rúna, í höfuðið á eiginkonu Guðmundar, og var svo lítill að aðrir sjómenn beygðu frá honum af ótta við að sökkva honum.

  • S06E04 Við nyrsta haf

    • Stöð 2

    Það eru aðeins tvær leiðir til að komast á bæinn Dranga á Ströndum, siglandi á báti eða gangandi yfir fjöllin sem umlykja bæinn. Þar bjuggu Kristinn og Anna ásamt fjórtán börnum. Ragnar Axelsson ljósmyndari heimsótti fjölskylduna á Dröngum eftir að hún hafði flust af bænum en Kristinn og Anna eyddu þar öllum sumrum ásamt einhverjum af börnunum og barnabörnunum. Þau stunduðu enn dúnræk þar á sumrin og Ragnar fékk innsýn inn í það hvernig lífið hefur verið á einum afskekktasta bæ landsins.

  • S06E05 Í leit að brimi

    • Stöð 2

    Í einni af ferðum sínum í leit að tilkomumiklu brimi náði ljósmyndarinn Ragnar Axelsson bæði myndum af andliti sem myndaðist í briminu í fjörunni við Dyrhólaey, og myndum af ferðalöngum sem lentu í briminu og máttu þakka fyrir að skolast ekki á haf út.

  • S06E06 Síðasti maðurinn á Vonarhöfða

    • Stöð 2

    Árið 2022 fór ljósmyndarinn Ragnar Axelsson til Grænlands til þess að fylgja síðasta íbúa þorpsins Vonarhöfða, Jens Emil, þegar hann yfirgaf þorpið. Jens Emil hafði búið einn í þorpinu í nokkur ár og einveran var farin að hafa áhrif á hann. Hann sá drauga sem voru afar smávaxnar verur en hann samdi frið við þær svo hann gæti búið áfram í þorpinu.

  • S06E07 Eiríkur í Svínadal

    • Stöð 2

    Eiríkur í Svínadal stundaði enn búskap í fullu fjöri, 92 ára að aldri, þegar ljósmyndarinn Ragnar Axelsson heimsótti hann. Eiríkur var framsýnn hugsuður sem hafði unnið að uppsetningu rafstöðva víða um sveitir og borað fyrir heitu vatni. Ragnar vildi ná mynd af þessum spræka manni þar sem hann væri að keyra og kom sér fyrir á frambrettinu á jeppa Eiríks en grunaði ekki hvaða hættu hann væri að koma sér í.

  • S06E08 Síðasti hreppstjórinn á Ströndum

    • Stöð 2

    Guðmundur Jónsson bóndi var síðasti hreppstjórinn í Árneshreppi á Ströndum og fluttist þaðan ásamt eiginkonu sinni, Sólveigu Jónsdóttur, haustið 2005. Þau eyddu öllum sumrum eftir það á gamla bænum þeirra í Munaðarnesi og ljósmyndarinn Ragnar Axelsson hitti þau eitt sumarið, 20 árum eftir að hann heimsótti þau fyrst og myndaði Guðmund á sömu stöðum og 20 árum fyrr. Guðmundur rifjaði upp sögur af póstferðum sem hann og faðir hans fóru gangandi að vetri, til þeirra bæja sem ekki voru í vegsambandi. Svoleiðis ferð yfir snævi þökt fjöllin gat tekið fjóra til fimm daga og enginn vissi hvernig fyrir þeim var komið fyrr en þeir komust á áfangastað og í símasamband.

  • S06E09 Systkinin á Knarrarnesi

    • Stöð 2

    Í eyjunni Knarrarnesi á Mýrum bjuggu systkinin Guðríður Jóna, kölluð Stella, Erlendur, Eiríkur, og Guðmundur. Foreldrar þeirra töldu að svæðið yrði miðstöð skipasiglinga í framtíðinni og lögðu hart að systkinunum að flytja ekki burt úr eyjunni. Þau bjuggu á Knarrarnesi alla sína tíð þar til þau fluttust eitt af öðru á dvalarheimili. Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson var eitt sinn á ferð ásamt Árna Johnsen, sem þá var blaðamaður, og fór út í eyjuna og heyrði sögu systkinanna og myndaði lífið á Knarrarnesi.

  • S06E10 Barrow, Alaska

    • Stöð 2

    Bærinn Barrow í Alaska er mjög afskekktur, umlukinn auðn sem er svo rist upp með miklum fjallgörðum. Bærinn er nyrsta byggð Norður Ameríku og þar búa u.þ.b. 4000 manns af frumbyggjaættum. Veiðimenn bæjarins veiða einn og einn hval á frumstæðum skinnbátum og deila svo kjötinu með öllum bæjarbúum. Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson elti veiðimennina út á hafísinn og en þeir þurfa að hafa hraðar hendur við að gera að hvalnum því hann lokkar til sín ísbirni sem geta verið stórhættulegir.