Fatíma, nýja vinkona krakkanna, hverfur skyndilega af jólatónleikunum ásamt dóttur sinni og hinn fjandsamlegi Ketill verður æ grunsamlegri.
Rafmagnið fer skyndilega af blokkinni og Randalín og Mundi leggja í hættulegan leiðangur niður í myrkan kjallarann.
Randalín og Mundi fara til Grétu Hansen í leit að upplýsingum um myrkraverk Ketils og neyðast til að setja á svið kaffiboð til þess að fá fleiri vísbendingar.
Krakkarnir baka fyrir hina árlegu piparkökuhúsakeppni en fljótt kemur í ljós að þeim er ýmislegt betur til lista lagt en að baka piparkökuhús eins og til dæmis það að gera símaat.
Þegar Randalín verður ljóst að þau Mundi eiga eftir að tapa fyrir Anítu og Stefáni í piparkökuhúsakeppninni reynist henni erfitt að hafa stjórn á sér.
Öll spjót beinast að Randalín og Munda sem nauðverjast í erfiðri stöðu.
Óvænt heimsókn lögreglunnar í leit að Fatímu og Nínu styrkir krakkana í þeirri trú að Ketill hafi eitthvað að fela.
Krakkarnir geta ekki sofið fyrir endalausum heilabrotum um jólagjafir og grunsamlega hegðun fullorðna fólksins og hætta sér í spennuþrunginn rannsóknaleiðangur að næturlagi.
Samviskan er farin að naga örþreytta krakka eftir svefnlausa nótt og Mundi vill játa yfirsjónir sínar fyrir Anítu og Stefáni en Randalín er efins.
Gréta Hansen gefur mikilvæg ráð en Ketill slær persónulegt met í leiðindum. Randalín og Mundi velta fyrir sér hvort grunsamleg hegðun nágrannanna eigi sér eðlilegar skýringar.
Foreldrar Munda verða æ skrýtnari, pendúllinn virðist hættur að virka og krakkarnir komast að leyndarmáli.
Loksins fá krakkarnir svör við mikilvægum spurningum sem reynast snerta fleiri en nágrannana og eru stærri en þau óraði fyrir.
Það sem virðist í fyrstu vera sakleysisleg bekkjarferð á Árbæjarsafn reynist leiða til örlagaríks upplýsingaleka í boði Anítu og Stefáns.
Þótt rómantíkin svífi yfir vötnum hjá fullorðna fólkinu á Árbæjarsafni magnast ótti krakkanna um að Fatíma og Nína séu í vanda og þau reyna sitt besta til þess að hjálpa.
Randalín og Mundi stela veitingum og stinga af úr jólalegu ljóðaboði á hlýlegan og dulrænan felustað.
Óvinir Randalínar og Munda elta þau á felustað Fatímu og það hefur örlagaríkar afleiðingar.
Jólaballið í skólanum tekur óvænta stefnu þegar Aníta og Stefán vilja gera hreint fyrir sínum dyrum og skólafélagarnir átta sig á hvers þau eru megnug ef þau leggjast á eitt.
Randalín og Mundi finna ráð við fýlunni af kæstri skötu og átta sig á að þegar vináttan verður flókin er best að ræða
Nágrannakærleikurinn er aldrei mikilvægari en á jólunum og jólaboð Fatímu tekur óvænta stefnu, en hvar er snjórinn?