Home / Series / Klink / Aired Order /

All Seasons

Season 1

  • S01E01 Hvað kosta ég?

    • October 24, 2019
    • RÚV

    Já það er ekki ódýrt að lifa! Nauðsynjar eins og þak yfir höfuðið, næring, föt og afþreying geta endað í hárri upphæð hver mánaðarmót. Í þessum fyrsta þætti skoða Júlí og Þórdís hvað það kostar að halda sér á lífi og hvernig við getum sparað á ýmsum sviðum.

  • S01E02 Fjárhagslegt frelsi

    • October 31, 2019
    • RÚV

    Í þessum þætti af KLINK fjalla Júlí Heiðar og Þórdís um það hvernig öðlast megi fjárhagslegt frelsi með sparnaði, varasjóði og öðrum hætti svo ekki þurfi að hafa áhyggjur af áföll sem hafa áhrif á fjárhaginn koma upp á.

  • S01E03 Að byrja að vinna

    • November 7, 2019
    • RÚV

    Í þriðja þætti af KLINK er farið yfir allt það sem hafa þarf í huga þegar byrjað er að vinna. Í hvaða lífeyrissjóð er greitt, hvaða kjarasamningar eru í gildi, hvað stéttarfélagið þitt gerir og í hvað skattarnir fara. Hvað gerist svo fyrir þá sem eru verktakar en ekki launþegar?

  • S01E04 Lán eða ólán

    • November 14, 2019
    • RÚV

    KLINK fjallar að þessu sinni um lántöku og hvað ber að varast í þeim efnum. Vextir á smálánum geta verið himinháir og þá munar aldeilis um hverja krónu.

  • S01E05 Að kaupa íbúð

    • November 21, 2019
    • RÚV

    Íbúðarkaup eru alla jafna stærsta fjárfesting sem fólk ræðst í á lífsleiðinni og það þarf að huga að ansi mörgu áður en skrifað er undir kaupsamning. Í þessum þætti er farið yfir hvað þarf að hafa í huga þegar þessi risastóra ákvörðun er tekin.

  • S01E06 Íbúðarlán

    • November 28, 2019
    • RÚV

    Farið yfir muninn á jafngreiðslu lánum og lánum með jöfnum afborgunum og eins er farið yfir hvað lánsmat sé og hvernig sé hægt að nýta sér séreignasparnað til kaupa á íbúð.