Home / Series / Sólon / Aired Order /

All Seasons

Season 1

  • S01E01 Ævintýraland

    • March 23, 2023
    • YouTube

    Í Ævintýralandi geta börn á aldrinum 3-9 ára brugðið á leik og átt ógleymanlegar stundir á meðan fullorðna fólkið verslar í Kringlunni. Meðal þess sem bíður barnanna í Ævintýralandi má nefna ótrúlega spennandi risakastala með boltalandi, skemmtilegan bát að leika í, barnaeldhús, föndurhorn, skapandi leikföng til að flokka, raða, kubba ofl. Eins má eiga rólega stund í notalegu slökunarherbergi með litlu bókasafni. Sjáðu Sólon leika sér og prófa allt sem Ævintýraland hefur upp á að bjóða!

  • S01E02 Pizzan

    • March 26, 2023
    • YouTube

    Ofurhetjan Sólon bakar alvöru pítsu á Pizzunni. Hann spreytir sig í eldhúsinu og fær kennslu frá alvöru fagmanni í pítsugerð. Eftir þennan þátt ættu börn og foreldrar að geta bakað saman alvöru pítsu.

  • S01E03 Slakki

    • April 29, 2023
    • YouTube

    Sólon heimsækir húsdýragarðinn Slakka. Sólon leikur sér með og klappar dýrunum, hoppar á ærslabelg, fer í minigolf og allskonar skemmtilegt. Sjáðu Sólon leika sér og sýna hvað Slakki hefur upp á að bjóða!

  • S01E04 Gerpla Fimleikar

    • May 20, 2023
    • YouTube

    Sólon kíkir í heimsókn í fimleikasal Gerplu. Þar leikur hann sér á trampólíni, púðagryfju, þrautabrautum og allskonar skemmtilegt. Sjáðu Sólon leika sér og sýna hvað Gerpla hefur upp á að bjóða!

  • S01E05 Skopp

    • July 15, 2023
    • YouTube

    Trampólíngarðurinn Skopp er einn vinsælasti áfangastaður krakka á öllum aldri. Uppblásinn fótboltavöllur, skotboltavöllur, klifurveggur, trampólíngarður og margt fleira. Sjáðu Sólon skemmta sér eins og enginn sé morgundagurinn.

  • S01E06 Fjölskylduland

    • September 8, 2023
    • YouTube

    Fjölskylduland er mjög skemmtilegur innileikvöllur. Þar sem er lögð áhersla á að skapa fallegt, öruggt og örvandi umhverfi fyrir börn að grunnskólaaldri. Leiksvæðin hvetja börn til þess að læra, þroskast og hafa gaman í gegnum leiki. Sólon kíkti í heimsókn og var sú heimsókn ekki af verri endanum!

  • S01E07 Fótboltaland

    • November 14, 2023
    • YouTube

    Fótboltaland er fyrsti fótboltaskemmtigarður Evrópu og þótt víðar væri leitað. Þetta er einn glæsilegasti skemmtigarður landsins með mikinn fjölda stafrænna tækja og þrauta sem tengjast fótbolta. Sólon og Spiderman kíkja í heimsókn og skemmta sér konunglega!!!

  • S01E08 Jólin

    • December 14, 2023
    • YouTube

    Sólon upplifir jólin í fyrsta skipti þar sem það eru engin jól á sólinni. Sólon bakar pikarkökuhús, hittir jólasveininn, spilar nokkur jólalög og margt fleira.

  • S01E09 Kastalakaffi og Martex

    • February 14, 2024
    • YouTube

    Sólon kíkir í Kastalakaffi sem er frábært kaffihús með ótrúlega skemmtilegu leikherbergi fyrir krakkana. Einnig fáum við innsýn í Martex/Batik sem er flott fyrirtæki sem sérhæfir sig í fataframleiðslu og merkingum á fatnaði, þar sjáum við hvernig við merkjum Sólon boli til dæmis!

  • S01E10 Bakstur og leikur

    • July 14, 2024
    • YouTube

    Sólon bakar kókoskúlur og berjaköku. Einnig kíkir Sólon út á leikskólalóð til að leika sér, syngur á gítarinn og fer yfir nokkur skemmtileg tilfinningaspjöld.

  • S01E11 Elliðaárdalur

    • September 25, 2024
    • YouTube

    Sólon á afmæli og fær skemmtilegar afmælisgjafir frá Bínu. Hann ákveður að leika sér með afmælisgjafirnar í góða veðrinu í Elliðaárdalnum.

  • S01E12 Jólin 2024

    • December 6, 2024
    • YouTube

    Sólon fagnar jólunum! Skyrgámur mætir aftur, Sólon opnar pakka, syngur jólalög, gerir góðverk og margt fleira.

Season 2

  • S02E01 Fjölskyldu og Húsdýragarðurinn

    • October 9, 2025
    • Sjónvarp Símans

    Sólon þarf að leysa verkefni í Fjölskyldu og húsdýragarðinum til að finna fyrsta sólarkristalinn

  • SPECIAL 0x1 Hreyfingarlagið

    • March 26, 2023
    • YouTube

    Hreyfingarlagið með ofurhetjunni Sólon sem elskar að hreyfa sig úti og leika sér. Sólon hvetur alla krakka til að hreyfa sig því að það er svo gott fyrir líkamann og sálina og til að þroskast og stækka heilbrigð og glöð.

  • S02E02 Slökkviliðsstöðin

    • October 9, 2025
    • Sjónvarp Símans

    Sólon þarf að læra að verða slökkviliðsmaður til að finna næsta sólarkristal.

  • SPECIAL 0x2 Ímyndunarlagið

    • April 15, 2023
    • YouTube

    Ímyndunarlagið þar sem ofurhetjan Sólon dansar Ímyndunarlags-dansinn með aðstoð barna í Fjölskyldulandi. Sólon elskar að hreyfa sig úti og leika sér og hvetur öll börn til að hleypa ímyndunaraflinu af stað því það gerir lífið svo skemmtilegt.

  • S02E03 Leikskólinn

    • October 9, 2025
    • Sjónvarp Símans

    Sólon þarf að leysa verkefni í Ævintýralandi til að finna næsta sólarkristal.

  • S02E04 Ævintýraland

    • October 9, 2025
    • Sjónvarp Símans

    Sólin þarf að leysa verkefni í Ævintýralandi til að finna næsta sólarkristal.

  • S02E05 Bóndabær

    • October 9, 2025
    • Sjónvarp Símans

    Sólon þarf að læra að verða bóndi til að finna næsta sólarkristalinn.

  • S02E06 Sólon keppir við Dimmu Dúsk

    • October 9, 2025
    • Sjónvarp Símans

    Sólon þarf að keppa við Dimmu Dúsk til að fá síðasta sólarkristalinn.