Penni Peppas varð fyrsta bandaríska konan til að leika hér á landi þegar hún gekk til liðs við Breiðablik árið 1994. Öskubuskuævintýri fylgdi í kjölfarið. Jenny Boucek lék með Keflavík og Ísland kom við sögu þegar hún steig risaskref fyrir konur í þjálfun og tók að sér starf NBA-deildinni. Dani Rodriguez settist hér að og varð fyrsta konan af erlendum uppruna til að leika fyrir íslenska landsliðið. Caitlin Clark er orðin ein stærsta íþróttastjarna Bandaríkjanna og gæti varðað veginn fyrir kvennaleikinn upp í óþekktar hæðir.