Eitt dularfyllsta sakamál Íslandssögunnar- morðið á Gunnari Tryggvasyni leigubílsstjóra- í nýju ljósi. Fyrri þáttur af tveimur.
Nýjar vendingar og upplýsingar um morðið á Gunnari leigubílsstjóra árið 1968. Seinni þáttur af tveimur.
Vopnaður og grímuklæddur nauðgari næst með fyrstu DNA rannsókninni á Íslandi.
Dramatískt sprengjuhótunarmál upplýst af íslenskri lögreglu : ‚Bin Laden er bestur, Bandaríkjamenn munu deyja, það er sprengja um borð – Al Qaida.‘
Breiðhyltingurinn frá brotna heimilinu sem komst í lykilstöðu hjá stærstu glæpasamtökum heims.
Sveddi Tönn á toppnum í fíkniefnaheiminum en er hann kominn á leiðarenda?
Par lést þegar bát steytti á skeri skammt frá Laugarnesi árið 2005. Þriggja manna fjölskylda bjargaðist naumlega af kili bátsins aðeins nokkrum mínútum áður en hann sökk. Margt er einkennilegt við þennan atburð og ljóst að atburðarásin var með allt öðrum hætti en skipstjóri bátsins hélt fram.
Þau eru kannski ekki mörg sem muna eftir Vegasmálinu svokallaða, þegar maður var drepinn á súluskemmtistaðnum Vegas í Reykjavík árið 1997, og tveir menn á endanum dæmdir sekir um morð af yfirlögðu ráði. Ekkert sakamál sögunnar hefur hins vegar haft eins víðtæk áhrif til breytinga á íslensku dómskerfi og þetta einstaka mál.
Stóra málverkafölsunarmálið, oft kennt við Gallerí Borg