Fannar Sveinsson mætir aftur í glænýrri þáttaröð, í kvöld slæst hann í för með þeim Jóhannesi Hauki, Selmu Björns og hvítvínskonunni.
Fannar flýgur til Vínarborgar þar sem leikkonan Elma Stefanía stígur á svið. Í Reykjavík slæst hann í för með Öldu Karen sem er aftur mætt í Hörpu með LIFE - MasterClass og fylgist líka með hinum eina sanna Geir Ólafs.
Stóra Eplið New York er viðkomustaður Fannars þar sem óperusöngkonan Dísella Lárusdóttir er í þann mund að stíga á svið. Heima á Íslandi fylgir Fannar eftir uppteknum borgarstjóra Degi B Eggertssyni og Eddu Björgvinsdóttur stórleikkonu.
Fannar fylgir hinum bráðfyndna Ara Eldjárn, einnig mun hann fylgja eftir fjölmiðlakónginum Sigmundi Erni og færeysku tónlistarkonunni Eivör.
Fannar fær að upplifa venjulegan vinnudag hjá yfirlögregluþjóninum Víði Reynissyni, hann fylgir einnig eftir sjónvarpsmanninum Sindra Sindrasyni og svo verður slegist í för með hinum margverðlaunaða knapa Konráði Vali Sveinssyni.