Áramótaskaup 2015 er áramótaskaup sem sýnt var á RÚV, 31. desember 2015. 8. janúar 2016 var skaupið sýnt í lengri útgáfu þar sem ónotuð atriði voru með í útgáfunni. Þar á meðal það umdeilda tólfu-atriði. Handritshöfundar skaupsins voru Atli Fannar Bjarkason, Guðjón Davíð Karlsson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir og Steinþór Hróar Steiþórsson. Leikstjóri var Kristófer Dignus. Ómissandi endapunktur sjónvarpsársins. Sérvalið grínráð sér um efnisöflun og rýnir í fréttir, viðburði og uppákomur ársins. Ráðið skipa margir af okkar fyndnustu og uppátækjasömustu grínistum af báðum kynjum, á öllum aldri og með rætur og taugar til allra landshluta.