Home / Series / A&B / Aired Order /

All Seasons

Season 1

  • S01E01 Barnastjörnur fara út í heim

    • March 30, 2025
    • Stöð 2

    Knattspyrnutvíburarnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir ætluðu sér snemma að fara út í atvinnumennsku og sigra heiminn. Eftir frábært ár 1992 voru þeir keyptir af hollenska stórliðinu, Feyenoord en leiðin var ekki eins greið og lagt var upp með.

  • S01E02 England

    • April 6, 2025
    • Stöð 2

    England er fyrirheitna landið í knattspyrnunni. Arnar fer til Bolton og þaðan er hann keyptur til Leicester fyrir metfé. Bjarki ætlar sér líka til Englands í gegnum Noreg en það tekst ekki fyrr en hann kemur heim og er stór hluti af fyrsta Íslandsmeistaraliði KR í 31 ár.

  • S01E03 Úr bolta í bissness

    • April 13, 2025
    • Stöð 2

    Arnar og Bjarki koma heim þrítugir og segja skilið við atvinnuknattspyrnuna. Þeir hasla sér völl í viðskiptaheiminum og fara mikinn á ýmsum sviðum. Efnhagslegar hamfarir riða yfir landið og tvíburarnir róa lífróður.