Morð er framið í Innanríkisráðuneytinu og fyrrum skjólstæðingur Stellu er gripinn glóðvolgur með blóðugar hendur yfir líkinu. Fórnarlambið er aðstoðarkona forsætisráðherra og málið virðist auðleyst.
Stella stígur á tærnar á háttsettum aðilum með rannsókn sinni á morðinu í ráðuneytinu og er ráðlagt að halda sig til hlés. En hún er ekki vön að hlýða slíku og verður bara ákveðnari í að leysa málið.
Regína, áhrifamikill fjárfestir, finnst myrt í fjölskyldubústaðnum við Svínavatn. Ung frænka hennar er grunuð um glæpinn og hefur fjölskylda hennar samband við Stellu í örvæntingu sinni.
Stella er komin aftur á byrjunarreit eftir nokkrar óvæntar uppgötvanir og neyðist til að hugsa málið upp á nýtt. Þórunn og samstarfsfélagar hennar hafa skilið eftir sig slóð vísbendinga.
Kínverskur ríkiserindreki reynir að nálgast viðkvæmar upplýsingar sem Stella er með í sinni vörslu. Stella er á milli steins og sleggju en örlögin haga því þannig að lokabardaginn á sér stað í Hörpu.
Stella er á flótta, bæði frá lögreglunni og frá kínverskum erindrekum. Til þess að hreinsa nafn sitt þarf hún að leysa málið fljótt og örugglega og forðast að vera handtekin á sama tíma.