Hjördís Anna hittir Kolbrúnu Völkudóttur söngkonu og ræðir stíl og tjáningu í söng á táknmáli. Vilhjálmur Vilhjálmsson segir frá fyrstu táknmálsorðabókinni og norrænu samstarfi um táknmálsorðabók. Berglind Stefánsdóttir útskýrir hvernig ungt fólk og samfélagsmiðlar móta íslenskt táknmál í dag.