Við kynnumst hinni ævafornu veru Loft sem hefur fengið að lifa óáreitt í milljónir ára þangað til jarðormar skemma allt. Loft tapar klútnum sínum og þar með uppsprettu galdrarmáttar þess.
Loft reynir að laga loftfarið sitt án árangurs. Sjón fylgist spennt með krökkunum keppa í Fánaráni og Áróra tekur til í náttúrunni og heimsækir Sorpu.
Nóra norðurljós hrapar í loftbelginn, Loft kann ekki að taka á móti gestum og Sjón verður afbrýðisöm. Á meðan bíður Áróra eftir norðurljósunum en ekkert gerist.
Áróra er 7 ára í dag og Loft á afmæli í ár! Það er samt löngu hætt að telja hvað það er gamalt. Sunna og Máni gera við bilað útvarp en Loft gæti nú tekið þau til fyrirmyndar.
Loftsteinn hrapar í átt að jörðu og Sunna og Máni fara í leiðangur að leita að honum. Óheppilega vill til fyrir þau að loftsteinninn hrapaði í körfuna hjá Loft þar sem hann lifnar við!
Loftfarið er alveg að gefa sig og Loft missir alla von um að finna galdraklútinn sinn aftur. Á meðan er Áróra veik heima og býr til galdraseyði með týnda klútnum sem nú er orðinn hennar. Krökkunum í skátabúðunum leiðist en Sunna deyr ekki ráðalaus heldur fer hún með krakkana í kappát en maturinn er ekki fyrir alla. Ætli þau þurfi að borða eitthvað myglað?
Loft hefur loksins fundið klútinn sinn en þarf nú að finna út úr því hvernig það nær honum til baka! Áróra nær að gera við hjólið sitt alveg sjálf og Sunna lætur krakkana keppa í reipitogi.
Loft og Sjón ferðast hægt en örugglega í átt að jörðu, til að endurheimta silkiklútinn en hvar er stelpan? Áróra strýkur að heiman og heldur af stað í mjög langt ferðalag en hvar endar hún?
9. Og svo... Loftfarið hefur hrapað, krakkarnir eru týndir og enginn veit með vísu hvort og hvenær þau komast aftur heim.
Loft er ekki vant því að halda upp á jólin í faðmi mannorma en Áróru, Sunnu og Mána hefur verið boðið í jólaboð um borð í loftbelgnum hjá Lofti. Það fer þó ekki betur en svo að Loft klúðrar málunum og Sjón fer á stúfana að leita lausna. Áður en hún veit af er hún lögst í ferðalag um fortíð og nútíð samtímis og rekst á ferðum sínum á hljómsveitina Flott, sem kveður um hana Grýlu gömlu.
Krakkarnir vilja hitta Loft og Loft vill hitta krakkana en hver þorir að taka fyrsta skrefið? Hver veit, kannski geta þau lært ýmislegt af hvort öðru.
Boðflenna gerir vart við sig í Loftbelgnum og Loft missir alla einbeitingu.
3. Aumingja Sjón Aumingja Sjón fær tak í hálsinn og Loft gerir allt í sínu valdi til að láta henni líða betur. Á meðan setur Sunna á svið hæfileikakeppni með krökkunum.
Áróra fer á ferðalag með Loft út í geim og þar hitta þau tja.... frekar furðulega veru!
Áróra er í heimsókn í loftbelgnum og kemst að því að Loft er ekki í neinu stjörnumerki. Ætli það sé meyja, naut, fiskur eða kannski sporðdreki?
Loft lætur sér leiðast á meðan krakkarnir búa til sína eigin tréhesta og keppa í tréhestabrokki.
7. Ævintýri inni í regnboga Er regnboginn áþreifanlegur? Er hægt að fara undir hann? Hvernig verður hann til?... Loft svarar öllum þessum spurningum þegar það fer með krakkana í ferðalag inn í regnbogann.
Áróra gefur Lofti plöntu og í framhaldinu ákveður Loft að safna eins mörgum plöntum og mögulegt er. Á meðan rækta Sunna og Máni sína innri listamenn með aðstoð plantna og gróðurs sem þau finna í náttúrunni.
Loft uppgötvar smáskjá og hyldýpi Internetsins
Loft fær slæmar fréttir að heiman og leitar allra mögulegra lausna.
Áróra vill verða fréttakona en kemst að því að það er ekki alltaf auðvelt!
Loft og sjón eru föstí svartholi og Áróra leitar leiða til að bjarga þeim.
Það er sannkölluð hrekkjavökustemning þegar sumarbúðargengið heldur út í myrkrið, tilbúið í ævintýri kvöldsins. Áróra ætlar aðeins að færa vini sínum hrekkjavökunammi en þegar hún hittir þann sem segist vera Loft tekur kvöldið óvænta stefnu.
Krakkarnir keppa í Sunnudegi og sigurvegararnir fá að heimsækja Loft. En heimsóknin tekur óvænta stefnu þegar Loft byrjar að hegða sér undarlega — og stelur minningum frá Oddi. Áróra grípur inn í og kemst að því að þetta er alls ekki hið sanna Loft!
Áróra fiktar í minningarsigtinu og beinir því að mömmu sinni. Vonda Loft verður örvæntingarfullt og sársvangt þegar það finnur sigtið ekki. Krakkarnir reyna að hjálpa því og hvetja það til að skapa sínar eigin minningar í stað þess að stela þeim frá öðrum.
Loft og Sjón eru enn föst í svartholinu og reyna að halda í vonina. Á jörðinni leita Áróra og Sunna leiða til að bjarga þeim en björgunin bregst. Á meðan baka Svana og Adda bollakökur.
Áróra lærir um goshveri á jarðhitasýningu og býr til „alvöru“ eldfjall með vinum sínum í sumarbúðunum. Þar kviknar hugmyndin – að fylla svartholið með ljósi og bjarga Lofti.
Það er fyrsti í aðventu og krakkarnir undirbúa jólin með því að föndra aðventukransa á meðan Svana og Adda búa til gómsætt Pana cotta fyrir veika ömmu Svönu. Í svartholinu sakna Loft og Sjón vina sinna og fylgjast vonaraugum með smáu ljósi sem glitrar úr fjarlægð. Ætli það sé merki frá vinum?
Áróra notar jólakransa til að senda ljós út í geim og Loft fylgir leiðaraljósinu! Fret snýr aftur – nú forvitnara en fyrr – og Áróra leiðir það í Árbæjarsafn, þar sem það lærir að skapa góðar minningar úr sögum og ævintýrum.
Áróra segir Freti frá töfrum jólanna. Hún býður Freti dýrmætan jólakrans – sem gæti líka bjargað Lofti. En FRET stendur frammi fyrir erfiðri ákvörðun: að hjálpa … eða halda í vináttuna sem það óttast að missa.
Loft fær óvæntan gest þegar Þorrinn sjálfur mætir með þjóðlega siði, gómsætan þorramat og skemmtilegar sögur.
Eftir að hafa séð fréttir af eldsvoða ákveður Áróra að læra allt um slökkviliðið. Á sama tíma rífast krakkarnir í sumarbúðunum um síðasta kleinuhringinn en þau þurfa að keppast um hann í skemmtilegum leik. Á meðan á fjörinu stendur rífast Sjón og Loft um górillur, já og hárkollur.
Uppáhaldsvika Áróru er runnin upp og hún ætlar bæði að baka bollur og búa til búning. Hún kynnir Loft fyrir bollu-, sprengi- og öskudegi og fær aðstoð við undirbúninginn.
TBA
TBA
TBA
TBA
TBA
TBA
TBA