Emmsjé Gauti er búinn að selja íbúðina og þarf að dytta að einu og öðru sem hann hafði lofað fyrir afhendingu.
Samfélagsmiðlastjarnan og leikkonan Kristín Péturs er að gera upp íbúð í miðbænum og Dóri mætir með verkfæratöskuna tilbúinn að standsetja eignina.
Hróður Dóra er farinn að berast víða og Sveppi sér fram á að geta sparað sér nokkrar krónur með því fá hann í heimsókn til að laga nokkra hluti sem setið hafa á hakanum.
Rithöfundurin og tónlistarkonan Margrét Örnólfs er sótt heim og fer yfir árin með sykurmolunum og þáttaskrif meðan Dóri reynir að stilla væntingum hennar í hóf.
Halldór bankar upp á með myndavél hjá síðasta manninum sem þú vilt að banki upp á hjá þér með myndavél, Helga Seljan.
Borgarfulltrúin Katrín Atla hefur verið að endurskipuleggja íbúðina til að búa til auka herbergi. Nú þarf Dóri að takast á við flóknasta verkefnið til þessa, að leggja parket.
Friðrik Dór hefur nýlokið við pallasmíði við fábrotin híbýli sín. Það er þó eitt sem vantar og það eru garðhúsgögn á pallinn.
Dóri sækir heim leikkonuna og handritshöfundinn Völu Kristínu sem á sér þann leynda draum að vera smiður. Í þessum þætti sameinast þannig tveir sviðlistamenn með smiðsdraum í því flókna verkefni að setja upp lista.
Dóri mætir í vistvæn híbýli Stjörnu-Sævars í Urriðaholtinu til að aðstoða hann við frágang á forstofunni. En áður en við vitum af er Sævar farinn að aðstoða Dóra við að ráða fram úr ráðgátum er snúa að fljúgandi furðuhlutum.
Edda Falak hefur verið að taka til hendinni í þjóðfélagsumræðunni síðustu misseri. Nú var komið að því að taka til hendinni heimafyrir og var Dóri fljótur að bjóða sér í heimsókn.
Þeir hafa leitt saman krafta sína á sviði en aldrei áður við iðnaðarstörf. Það er að mörgu að huga á heimili Ara og hann fær langþráðann draum sinn uppfylltan þegar hann sest undir stýri á alvöru iðnaðar pikk öpp.
Stórsöngkonan og poppstjarnan Bríet er nýflutt í fallega og litla íbúð í Vesturbænum. Það er lítið að laga svo Dóri ákveður að smíða fataskáp inn í rýmið.