Home / Series / Opnun / Aired Order /

All Seasons

Season 1

  • S01E01 Kristján Guðmundsson og Sigurður Guðmundsson

    • March 23, 2023
    • RÚV

    Heimildarþáttaröð um samtímamyndlist á Íslandi. Listamennirnir og bræðurnir Kristján og Sigurður Guðmundssynir fara yfir gamla tíma og nýja.

  • S01E02 Birgir Snæbjörn Birgisson og Melanie Ubaldo

    • March 30, 2023
    • RÚV

    Heimildarþáttaröð um samtímamyndlist á Íslandi. Melanie Ubaldo setur upp útskriftarsýningu sína í meistaranámi í myndlist. Birgir Snæbjörn Birgisson undirbýr yfirlitssýninguna Careless Whisper í Listasafni Íslands.

  • S01E03 Hekla Dögg Jónsdóttir og Páll Haukur Björnsson

    • April 13, 2023
    • RÚV

    Heimildarþáttaröð um samtímamyndlist á Íslandi. Hekla Dögg Jónsdóttir myndar sólarupprásina og svo er farið á vinnustofuna hennar. Páll Haukur Björnsson setur saman verk fyrir sýninguna „Millenials“ í Gerðarsafni.

  • S01E04 Pétur Magnússon og Erla Þórarinsdóttir

    • April 20, 2023
    • RÚV

    Heimildarþáttaröð um samtímamyndlist á Íslandi. Rætt er við Pétur Magnússon á heimili hans í Vesturbæ Reykjavíkur og svo er farið á vinnustofu hans. Erla Þórarinsdóttir sýnir verk sín sem tefla saman því varanlega og skammvinna, því einstaklingsbundna sem bundið er við tíma og skipulag og því eilífa og sammannlega.

  • S01E05 Rakel McMahon og Hildigunnur Birgisdóttir

    • April 27, 2023
    • RÚV

    Heimildarþáttaröð um samtímamyndlist á Íslandi. Rakel McMahon fer meðal annars í gegnum ferlið á bak við gjörninga sína. Hildigunnur Birgisdóttir ræðir ferlið við að stækka upp fjöldaframleidda hluti fyrir sýningu sína, Peace, í i8.

  • S01E06 Ragna Róbertsdóttir og Sigurður Guðjónsson

    • May 4, 2023
    • RÚV

    Heimildarþáttaröð um samtímamyndlist á Íslandi. Fylgst er með Rögnu Róbertsdóttur á vinnustofu hennar í Reykjavík þar sem hún fer yfir verk sín á meðan hún býr þau til flutnings erlendis. Sigurður Guðjónsson leggur lokahönd á verkið Ævarandi hreyfing sem var framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum 2022.