Home / Series / Norms / Aired Order /

All Seasons

Season 1

  • S01E01 Hin konan

    • June 4, 2021
    • Stöð 2

    Sara les bækur, fer út að skokka, borðar góðan mat og kúrir með yndislegu unnustunni. Samt rankar hún reglulega við sér í bólinu með hinni konunni. Tilveran er tifandi tímasprengja.

  • S01E02 Ógeðsleg

    • June 11, 2021
    • Stöð 2

    Vinir Söru hjálpa henni að átta sig á því að hún getur ekki endalaust falið sig. Þegar sannleikurinn ratar í dagsljósið verður Thelma allt annað en sátt með það sem hún kemst að.

  • S01E03 Allstaðar nema hér

    • June 18, 2021
    • Stöð 2

    Sara er búin að missa vinnuna, unnustuna og sjálfsvirðinguna. Þegar maður er kominn á botninn hefur maður engu að tapa eða hvað? Hún kaupir sér flugmiða, aðra leið.

  • S01E04 Nýir meðleigjendur

    • June 25, 2021
    • Stöð 2

    Að finna sér vinnu og heimili í Berlín er ekki eins auðvelt og Sara hafði séð fyrir sér. En þegar hún eignast nýjan berlínskan vinahóp kviknar hjá henni von.

  • S01E05 Ég hata fugla

    • July 2, 2021
    • Stöð 2

    Eftir nokkur misheppnuð Tinder-deit og skelfilegan ljóðalestur ákveður Sara að fara aftur heim. Kannski er ástin í lífi hennar tilbúin að taka í hönd hennar á ný.

  • S01E06 Sannleikurinn

    • July 9, 2021
    • Stöð 2

    Sannleikurinn Thelma vill ekki gefa Söru annan séns svo Sara ákveður að biðja Berlín um einn í viðbót. Hún skráir sig í skóla, fetar ótroðnar slóðir og freistar þess að finna drauminn þar.