Aftur og aftur reyndu börn og fullorðnir að tilkynna að ekki væri allt með felldu á sveitabænum Bakkakoti þar sem þau voru í vist. Börn voru send þangað fyrir tilstilli sveitarfélaga í þrjú sumur eftir að drengur var fluttur þaðan í kjölfar barsmíða húsfreyjunnar.