Frábærir tónlistarþættir með Ingó þar sem áhorfendur heima í stofu fá einstakt tækifæri til að læðast baksviðs og upplifa einstaka stemningu þegar skemmtikraftar koma saman og telja í gleðina. Í hverjum þætti syngur Ingó sig í gegnum íslenska tónlistarsögu með skemmtilegasta fólki landsins og því er ljóst að fjölskyldur landsins munu koma sér vel fyrir í sófanum heima og taka undir. Fyrsta tónlistarfólkið sem hann syngur með eru þau Jóhanna Guðrún, Davíð Sigurgeirsson, Sverrir Bergmann og Halldór Gunnar.