Home / Series / Heima / Aired Order /

All Seasons

Season 1

  • S01E01 Þáttur 1

    • November 17, 2022
    • Sjónvarp Símans

    Í fyrsta þætti verður borið niður í skútunni Sæúlfi, heimili þeirra Helenu og Markúsar í Hafnarfjarðarhöfn. Í síðari hlutanum liggur leiðin á Flateyri til hjónanna Kristínar og Ívars sem eru bæði fædd og uppalin á staðnum og vilja hvergi annarsstaðar vera.

  • S01E02 Þáttur 2

    • November 17, 2022
    • Sjónvarp Símans

    Í öðrum þætti segir Thelma Rún frá því hvernig Mikki mús kveikti hjá henni óbilandi áhuga á Japan þegar hún var barn sem síðar leiddi til þess að hún flutti til Tokyo þar sem hún hefur búið undanfarin ár. Í síðari hlutanum opnar Nína Eck heimili sitt, en hún býr ásamt syni sínum í samhentu samfélagi á stúdentagörðum Háskóla Íslands.

  • S01E03 Þáttur 3

    • November 17, 2022
    • Sjónvarp Símans

    Í þriðja þætti skartar Flókadalur í Fljótum sínu fegursta en þar býr bóndinn Kristófer Orri sem hóf búskap á jörðinni Syðsta Mó rétt um tvítugt. Í síðari hlutanum segir Andrea Gutiérrez frá því hvernig var að koma sem flóttamaður til Íslands sem svo hefur unnið hug hennar og hjarta.

  • S01E04 Þáttur 4

    • November 17, 2022
    • Sjónvarp Símans

    Í fjórða þætti liggur leiðin að Meðalfallsvatni þar sem rætur „Parísardömunnar“ Kristínar liggja sem dýpst. Í síðari hlutanum eru það hjónin Bjarni og Sigríður sem bjóða heim á Tjarnargötuna, en húsið hefur frá byggingu verið í eigu fjölskydunnar, eða í rúm 120 ár.

  • S01E05 Þáttur 5

    • November 17, 2022
    • Sjónvarp Símans

    Í fimmta þætti segir Alexandra Kjurege frá því þegar hún flutti sem ung kona til Íslands frá Jakúdíu og því hvernig hún aðlagaðist framandi heimkynnum fjarri æskustöðvunum. Í síðari hlutanum liggur leiðin vestur á Drangsnes þar sem hin litríka Magga Sína fann sinn sælureit og sálarró.

  • S01E06 Þáttur 6

    • November 17, 2022
    • Sjónvarp Símans

    Í sjötta og síðasta þætti er það Ingibjörg, sendiherra Íslands í Osló, sem býður heim á æskuslóðirnar í Borgarfirði, þann stað sem sem á hjarta hennar skuldlaust. Það er svo Borgarfjörður eystri sem er sögusvið síðari hluta þáttarins, heimaslóðir Magna Ásgeirssonar, sem hefur lagt mikið af mörkum við uppbyggingu staðarins.