Þáttur 1: Allt var einu sinni hugmynd! Í þættinum er fjallað um hvernig hugmyndir skapa heiminn okkar og hvernig vandamál geta verið uppspretta nýrra hugmynda.
Hvernig virkar hugurinn okkar? Hvar verða hugsanir og hugmyndir til? Birta og Jean spjalla við hugmyndasmiðinn Sunnu sem býr til steypu úr umhverfisvænu efni.
Birta og Jean kynna Verkfærakistu hugmyndasmiðsins sem allir krakkar geta lært að tileinka sér.
Hugmyndir geta breytt heiminum! Hér fjalla Birta og Jean um stóru málin sem þarf að leysa, eins og plastmengun og matarsóun. Þau hitta líka Söndru hugmyndasmið hjá Carbfix.
Þáttur 5: Íslenskir hugmyndasmiðir Á Íslandi eru margir klárir hugmyndasmiðir. Birta og Jean spjalla við Guðmund, Rakel og Árna sem öll eru hugmyndasmiðir sem búa til vörur úr náttúrulegu efni.
Hugmyndasmiðir þurfa að hafa hugrekki til að koma hugmyndum sínum í framkvæmd. Birta og Jean gefa góð ráð til að koma hugmynd á framfæri.