Í þessum fyrsta þætti kynnumst við þeim Róberti og Siggu sem langar að fjárfesta í sinni fyrstu íbúð. Þau þurfa ekki marga fermetra en það skiptir þau máli að búa nokkuð miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Móðir Róberts, Edda Björgvinsdóttir hefur vafalaust skoðanir á því hvar sonur hennar festir rætur og sér því um að skutla parinu á milli íbúðana sem þau skoða.