Home / Series / Draumaheimilið / Aired Order /

All Seasons

Season 1

Season 2

  • S02E01 Róbert og Sigga

    • August 23, 2021
    • Stöð 2

    Í þessum fyrsta þætti kynnumst við þeim Róberti og Siggu sem langar að fjárfesta í sinni fyrstu íbúð. Þau þurfa ekki marga fermetra en það skiptir þau máli að búa nokkuð miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Móðir Róberts, Edda Björgvinsdóttir hefur vafalaust skoðanir á því hvar sonur hennar festir rætur og sér því um að skutla parinu á milli íbúðana sem þau skoða.

  • S02E02 Helgi og Kristína

    • August 30, 2021
    • Stöð 2

    Við verðum í höfuðborg Norðurlands að þessu sinni en þau Helgi og Kristína og börnin þeirra þrjú fluttu nýverið heim frá Svíðþjóð og eru í leit að framtíðarheimilinu. Fasteignasalinn Tryggvi Gunnarsson sýnir hjónunum glæsilegar eignir sem eru staðsettar bæði norðan og sunnanmegin við Glerána. Við fylgjumst með þessari fimm manna fjölskyldu leita af þeirra draumaheimili.

  • S02E03 Gísli og Eygló

    • September 6, 2021
    • Stöð 2

    Í þessum þætti er það enginn annar henni Vernharð Þorleifsson sem aðstoðar þau Gísla og Eygló í leit að Draumaheimilinu. Venni eins og hann er kallaður sýnir þeim tvær fallegar eignir í Kópavogi og nýuppgerða íbúð á efstu hæð við Miðstræti í Reykjavík. Við tökum svo hús á þeim Oddnýju og Almari sem festu kaup á draumaheimilinu sínu í síðustu seríu og fáum við að sjá hvernig þau hafa gert heimilið að sínu.

  • S02E04 Nataly og Hinrik

    • September 13, 2021
    • Stöð 2

    Nataly og Hinrik eru að kaupa sér sína fyrstu fasteign saman nú þegar þau eiga von á frumburði sínum í lok árs. Við fáum að fylgjast með þessu spennandi verkefni en þau fengu fasteignasalann sem áhorfendur ættu að vera farnir að þekkja, Pál Pálsson til aðstoða sig. Þau Nataly og Hinrik setja staðsetninguna ekkert fyrir sig og allt í lagi þótt það krefjist einhverra framkvæmda. Simmi smiður heldur áfram að kenna Hugrúnu Halldórs sniðug ráð þegar kemur að fasteignakaupum.

  • S02E05 Emilía og Atli

    • September 20, 2021
    • Stöð 2

    Í þessum þætti af Draumaheimilinu heimsækir Hugrún skvísurnar á fasteignasölunni Fagvís í Hveragerði. Elínborg, nemi til löggildingar fasteigna fær til sín fjögurra manna fjölskyldu úr Vesturbænum sem eru tilbúin til að flytja úr höfuðborginni. Elínborg sínir þeim Emilíu og Atla þrjár eignir, tvær í Hveragerði og eina í Ölfusi. Það verður spennandi að sjá hver þeirra verður fyrir valinu.

  • S02E06 Skúli og Karlotta

    • September 27, 2021
    • Stöð 2

    Í þessum þætti snýr Hera Björk fasteignasali aftur til okkar og sýnir þeim Skúla og Karlottu þrjár eignir á Höfuðborgarsvæðinu. Simmi smiður heldur áfram að sýna Hugrúnu hvað ber að varast þegar verið er að huga að fasteignakaupum. Við fylgjumst með hvort að þau Skúli og Karlotta ákveði að flytja í Vesturbæinn eða í Laugardalinn.

  • S02E07 Óskar og Berglind

    • October 4, 2021
    • Stöð 2

    Í þessum þætti kynnumst við Óskari en hann vill finna húsnæði í Hafnarfirði fyrir sig og kærustu sína, Berglindi. Staðgengill Berglindar í íbúðaleitinni, af sökum sóttkvíar, er systir hennar, Freyja Lind. Þau fá aðstoð fasteignasalanum Eiríki sem er að auki frændi Óskars. Simmi smiður fer yfir mikilvæg haustverk sem fylgir því að reka heimili.

  • S02E08 Bogi

    • October 11, 2021
    • Stöð 2

    Í þessum þætti kynnumst við Boga en hann er í leit að sinni fyrstu íbúð. Einnig heimsækjum við Fanneyju sem kom fyrir í fyrstu seríunni af Draumaheimilinu.

Season 3

  • S03E01 Helga Lóa og Valgerður

    • February 13, 2023
    • Stöð 2

    Í þessum fyrsta þætti í þriðju seríu af Draumaheimilinu ætlum við að fá að fylgjast með þeim Helgu Lóu og Valgerði í fasteignaleit. Þær vilja halda sig innan Kópavogs og dreymir um góðan garð og helst með heitum potti. Snillingarnir á Pálsson fasteignasölunni þau Palli og Helen ætla aðstoða þær við að finna Draumaheimilið. Simmi smiður sýnir einnig Hugrúnu hvað ber að varast þegar kemur að fasteignaleit.

  • S03E02 Daði og Ólöf

    • February 20, 2023
    • Stöð 2

    Í þessum þætti kynnumst við þeim Daða og Ólöfu sem keyptu sína fyrstu eign í Njarðvík til að koma sér inná fasteignamarkaðinn en vilja nú flytja nær höfuðborgarsvæðinu, nánar tiltekið í Hafnarfjörðinn. Þau fengu Heru Björk hjá RE/MAX til að aðstoða sig við leitina sem fann þrjár mismunandi eignir í firðinum góða. Við fáum líka góð ráð frá stelpunum í Íslandsbanka þegar kemur að fasteignakaupum.

  • S03E03 Fríða

    • February 27, 2023
    • Stöð 2

    Í þessum þætti hittir Hugrún hana Fríðu sem er að hefja nýjan kafla. Hana langar að minnka við sig og minnka húsnæðislánin með því að flytja út fyrir höfuðborgarsvæðið. Hún fær Sirrý vinkonu sína til að aðstoða sig við að skoða þrjár íbúðir á Selfossi og það er Guðmunda á fasteignasölunni Gimli sem tekur á móti þeim. Selfoss er í mikilli uppbyggingu og því verður spennandi að sjá hvaða eign verður fyrir valinu. Simmi smiður heldur áfram að sýna okkur góð ráð þegar kemur að húsnæðismálum.

  • S03E04 Guðjón Pétur og Kristín Ösp

    • March 6, 2023
    • Stöð 2

    Guðjón Pétur og Kristín Ösp eru mjög framkvæmdaglöð hjón. Þau, ásamt strákunum þeirra þremur eru í leit að framtíðarheimili og fengu Þórunni hjá Miklaborg til að aðstoða sig við kaupin. Þórunn sýnir þeim þrjár glæsilegar eignir og vonast til að ein þeirra henti þessari fimm manna fjölskyldunni. Hjónin setja staðsetninguna ekki fyrir sér bara svo lengi sem það er stutt þjónustu, skóla og íþróttasvæði. Við fáum einnig góð húsnæðisráð frá Íslandsbanka.