Home / Series / Allt úr engu / Aired Order /

All Seasons

Season 1

  • S01E01 Aron Már Ólafsson

    • August 24, 2020
    • Stöð 2

    Í þessum þætti heimsækir Davíð eldhúsið hjá leikaranum Aroni Má Ólafssyni. Davíð gramsar í ísskápnum og leitar að hráefni sem Aron og fjölskylda geta nýtt betur. Grillað brokkólíní, birkivafinn lax og banana súkkulaði-myntu-mús er eitthvað sem vafalaust fær áhorfendur til að fá vatn í munninn.

  • S01E02 Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir

    • August 31, 2020
    • Stöð 2

    Davíð heimsækir eldhúsið hjá Áslaugu Örnu. Í ísskápnum hjá dómsmálaráðherra leynist ýmislegt sem nýta má í alskyns matreiðslu. Hver hefði t.d. trúað því að gúrka myndi passa vel í eftirrétt?

  • S01E03 Georg

    • September 7, 2020
    • Stöð 2

    Davíð heimsækir einn þekktasta barþjón landsins, Georg. Að þessu sinni verður unnið með gulrætur og matreiða þeir unaðslega rétti. Einnig mun Davíð kenna okkur hitt og þetta. Til dæmis hvernig við búum til smjörsósu úr gamalli súrmjólk.

  • S01E04 Júlían

    • September 14, 2020
    • Stöð 2

    Davíð heimsækir íþróttamann ársins, Júlían J.K. Jóhannsson. Á heimili kraflyftingakappans fann Davíð grasker sem hann ætlar að nýta girnilega rétti. Hvernig hljómar grilluð flanksteik með bökuðu graskeri og steiktum villtum sveppum?

  • S01E05 Birna Rún

    • September 21, 2020
    • Stöð 2

    Davíð heimsækir leikkonuna Birnu Rún Eiríksdóttir sem sló m.a. í gegn í Jarðaförin mín. Davíð leitast við að sýna henni hvernig betur megi nýta matvöru á hennar heimili.

  • S01E06 Ragnheiður Sara

    • September 28, 2020
    • Stöð 2

    Crossfit-stjarnan Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir býður Davíð velkominn í eldhúsið sitt. Rauðkál í epladjús og grillað toppkál eru réttir sem gætu hljómað eins og áskorun fyrir þau Davíð og Söru.