Það getur verið gaman að prófa nýjar og framandi smákökusortir um jólin. Alfajores eru vinsælar jólasmákökur í löndum Suður-Ameríku. Þar eru þær venjulega settar saman með dulce de leche, karamellu gerða með því að sjóða niður kúamjólk með sykri. Hér er notuð geitamjólk í staðinn og þá kallast karamellan cajeta. Uppskrift má nálgast á Vísir.is.
Það furðulega við eplaskífur er að í þeim eru engin epli og svo eru þær ekki skífulaga. Upphaflega voru þetta raunverulegar eplaskífur sem dýft var í soppu og djúpsteiktar. Steikingin færðist síðan yfir í sérstakar pönnur og af einhverjum ástæðum hverfa eplin síðan algjörlega. Með eða án epla þá eru skífurnar - eða réttara sagt boltarnir - dásamlegir með góðri sultu og rjúkandi kaffibolla. Uppskrift og leiðbeiningar má nálgast á Vísir.is.
Tommi og Jenni (Tom and Jerry) var vinsæll jólakokteill sem blaðamaðurinn Pierce Egan átti heiðurinn að. Hann nefndi kokteilinn eftir aðalpersónum í bók sinni Life in London sem kom út árið 1820 og á drykkurinn því ekki skylt með teiknimyndapersónunum frægu. Kokteillinn var geysivinsæll í Bandaríkjunum á nítjándu öld og fyrri hluta þeirrar tuttugustu en féll í gleymsku um miðbik 20. aldarinnar, nema þá í miðríkjunum þar sem hann er enn í miklum metum. Uppskriftina má nálgast á Vísir.is.
Kvennafræðarinn eftir Elínu Briem kom út árið 1889 og var fyrsta matreiðslubókin sem náði almennri útbreiðslu á Íslandi. Samkvæmt Nönnu Rögnvaldar gjörbreytti bókin í rauninni íslenskri matargerð en með henni koma dönsku húsmæðraskólaáhrifin fyrst fyrir augu almennings. Uppskriftina má nálgast á Vísir.is.
Nanna Rögnvaldar er flestum landsmönnum kunn fyrir yfirgripsmikla þekkingu sína á íslenskri matarhefð. Ár hvert blæs Nanna til heljarinnar veislu á aðventunni, sem hún kallar Forláksmessuboð, þar sem drekkhlaðið borðið svignar undan dýrindis kræsingum. Einn af þeim réttum sem Nanna býður upp á er kjúklingalifrarkæfa. Uppskriftina má nálgast á Vísir.is.
Vandamálið við kalkún er þetta er stór fugl sem er nokkuð erfitt að elda í heilu lagi svo vel til takist. Á fuglinum er nefnilega tvenns konar kjöt sem þarf að ná mismunandi kjarnhitastigi. Í þessum þætti fer Árni yfir atriðin sem er gott að hafa í huga til að elda ljúffengan jólakalkún. Uppskriftina má nálgast á Vísir.is