Myndin sem er byggð á samnefndu leikriti Ólafs Hauks Símonarsonar er fjölskyldudrama sem gerist í óskilgreindu sjávarþorpi úti á landi þar sem lífið snýst um fisk og aftur fisk. Þórður hefur rekið útgerð í 50 ár. Hann er aðalatvinnurekandinn á staðnum og hefur stjórnað fjölskyldu sinni og plássinu öllu eftir sínu höfði og er vanur því að honum sé hlýtt í einu og öllu. Hann kallar börnin sín þrjú á sinn fund og ætlar sem fyrr að legga hjörð sinni línurnar um þeirra hlut varðandi framtíð fyrirtækisins, fyrirtækisins sem er honum allt. Það gleymist þó að taka með í reikninginn að þau hafa aðrar hugmyndir um eigin framtíð og vilja einna helst selja kvótann hæstbjóðanda til að njóta ávaxtanna annars staðar. Þórður er ekki maður málamiðlanna og geymir ýmis tromp á hendi sem hann ætlar sér að nýta til að fá sitt fram. Í ljós kemur að í fortíðinni liggja ýmis mál grafin, en ekki öllum gleymd. Uppgjör er óumflýjanlegt, en afleiðingarnar aðrar en nokkurn óraði fyrir.
Deutsch
español
русский язык
italiano
עברית
English
Íslenska